Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

föstudagur, júní 17, 2005

17.Júní

Jæja gleðilega þjóðhátíð allir saman, eða þið tvær allavega sem skoðið síðuna mína .. thíhíhí ..
Ég byrjaði daginn snemma eða klukkan 05:45 .. já þetta er ekki prentvilla. Þannig er mál með vexti að hann Guðjón fékk að gista hjá mér og af einhverri ástæðu stóð hann fastur á því klukkan 05:45 að það væri komin dagur!!! Þegar það var svo komin dagur fyrir alvöru eða klukkan 10:30 tókum við þátt í 17.júní hlaupi á íþróttavellinum, það var rosa gaman og eitthvað sem ég hef ekki gert í svona tæp 20 ár ... húff vá þetta hljóma hræðilega :o( Eftir erfitt hlaup fengum við okkur ís í pulsuvagninum og héldum heim á leið.
Í hádeginu fengum við svo gesti, tvö pör af ömmu og afa :o) þau komu með okkur niður í Skalló þar sem sólin gersamlega var að kæfa okkur úr hita. Krakkarnir voru allvega af fíla þvölina þar, hlupu um í sólinni og léku sér í leiktæjunum sem var búið að koma fyrir á planinu fyrir utan skátahúsið sem sómar sig allveg rosa vel þarna við enda Skallagrímsgarðarinns. Talandi um skátaheimilið, þá kíkti ég þar inn í dag, eitthvað sem ég hef ekki gert roooooosa lengi og það er hægt að segja að það hafi aðeins breyst .. Kordelía hitti Cavalier strák í dag henni fannst hann nú ekkert vera að kunna sig á köflum.
Eftir skemtilega dvöl í skalló fórum við svo í kaffi til mömmu og pabba eins og vanalega á 17. júní. Gestirnir okkar hurfu aftur til síns heima, en skildu eftir hjá okkur þessa dírindis uppþvottavél sem miklar vonir eru bundnar við á heimilinu :o)
Það setti hins vegar skugga á daginn að amma var flutt með sjúkrabíl út á skaga, en hún fékk blóðtappa sem reindar virðist hafa lostnað strax aftur. Ég vona að hún nái sér sem fyrst, það var plönuð heimsókn til hennar á morgun, en við kíkjum nú samt á Stjána sem er þá bara einn með heimilið.

Vonandi áttu þið góðan þjóðhátíðardag, yfir og út ............

miðvikudagur, júní 15, 2005

Ríðum ríðum ..

Jæja sökum þess hve bloggheft ég er þá hef ég ekki skjalfest það ennþá að ég var í sleppitúr um seinustu helgi. Það var farið af stað úr Borgarnesi um hádegi .. eða svona hádegi - og riðið vestur á Capteinsflöt. Þarna var saman komin hópur góðra manna og hesta.
Gestur var á myndavélinni eins og svo oft áður og hann er búin að skella inn "nokkrum" myndum af atburðinum. http://www.svaka.net/gallery/sleppiturinn_2005?page=1 ykkur er velkomið að kíkja á þær.
Við fengum æðislegt veður, það var við það að vera of heitt á tíma en slapp. Allt gekk að óskum, engin datt af baki, ekki einu sinni ég :o)

þriðjudagur, júní 14, 2005

Argg ...

Ooo nú er ekkert að ganga upp hjá mér.

Þið hafið eflasut tekið eftir því að í gær var æðislegur dagur, það var glampandi sól og heiðskírt í allan gærdag, ég sat úti og las og svo fór ég í hjólreiðatúr með krökkunum.
Ég var búin að lesa nokkra kafla þegar ég fattaði það ég setti bara sólarvörn á krakkana ekki mig, ég fór inn og skelli á mig vörn .. en já aðeins of seint sem sagt .. ég ætti kannski að skella inn mynd af mér svona til að enhver geti hlegið í dag :o(

Og svo er það þessi síða hafi þið tekið eftir því hvað hún er flott hérna vinstra megin, það er sama hvað ég geri það bara breitist ekkert þarna megin, ég er búin að setja fullt af dóti þarna en en NEI ... ég er að þrjóskast við af því að mér líkar þetta fyrirkomulag á síðunni ARG ...

En góðu fréttirnar eru þær að það er skýjað í dag og ég kláraði bókina, var að lesa Röddina eftir Arnald, hún var bara þræl góð eins og allar hanns bækur. Ætli það verði þá ekki bara SIMS dagur í dag :o)