Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Venjulegur þriðjudagur.

Jæja jæja, þetta er ósköp venjulegur þriðjudagur, eginlega of venjulegur eitthvað, ég sit bara fyrir framan tölvuna og nenni ekkert að gera :(

Það er ausandi rigning úti, æðislegt fyrir blómin !!

Gamla settið var að koma heim frá svíjaríki í dag, eru búin að vera í drullusvaðinu á heimsmeistaramótinu og skemmtu sér konunglega, sérstaklega mamma á mótinu, thíhíhí ... það er hægt að segja það án þess að vera mikið að ýkja að hálf ættin var þarna saman komin.

Það eru 30 dagar þar til ég fer til Parísar, við erum enn að vesenast yfir því hvaða hóteli við eigum að vera á ... miðað við úrvalið af hótelum þá er ég farin að halda að það séu allavega tvö hótel í hverju húsi þarna maður ... sem gerir leitina auðvitað mjög flókna. Á maður að vera í ódýru hóteli og deila rúmmi með köngulóm og kakkalökkkum eða á maður að borga heldur meira og minka þar með líkurnar á slíkum gestum. hummm bara erfitt ....
Annars var ég á fínu hóteli úti í París þegar ég var það 2003 en þar kostar dvölin í 4 nætur aðeins 20.000.- krónur og morgunmatur 1.500.- á mann á dag ... sem er aðeins meira en við höfðum hugsað okkur. Sind því það var frábært hótel.

Jæja ég ætla að fara að halda áfram að gera ekkert, ef þið vitið um ódýrt og gott hótel í parís, ekki hika við að bjalla í mig :o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home