Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

föstudagur, september 30, 2005

Eitt örlítið afmælisblogg ...

Sko ég er búin að byrja á bloggi svona 3 sinnum frá því klukkan 08:15 í morgun, fyrst ætlaði ég að segja ykkur frá því hvað ég vaknaði ótrúlega hress og hraust í morgun miðað aðstæður, en svo fannst mér það ekki vera efni í blogg svo ég hætti bara. Næst datt mér í hug að blogga um það að ég hef ekki hugmynd um hvað mig langar að gera í dag en again, fannst mér það ekki vera efni í blogg, nú svo fékk ég þá snildar hugmynd að setja kannski inn nokkur orð um þennan merkilega dag, hvað hefði gerst þennan dag seinusu 30 árin en ég auðvitað nennti því ekkert og lagðist upp í sófa og lagði mig :o)

En núna get ég sagt ykkur hvað tæknin hefur breist frá því að ég fæddist.

Þegar ég varð eins árs þurfti fólk annað hvort að koma til mín í afmælið eða hringja í sveitasímann, þú veist ein löng, þrjár stuttar (ég hélt nefnilega upp á 1 árs afmælið mitt hjá ömmu og afa í sveitinni, nánar tiltekið Syðstu-Görðum)

En í dag er ég búin að fá fullt af afmæliskveðjum ..
2 hringdu í GSM símann minn
7 hafa send mér SMS
5 sendu mér línu með MSN
2 hafa sent mér e-mail
4 hafa óskað mér til hamingju í egin persónu

.. og það er bara hádegi.

fimmtudagur, september 29, 2005

Nú fer fjörið að byrja .. eða ekki.

Fór á æfingarleik hjá Skallagrím í körfuni í gærkvöldi, það var bara fullt hús og rosa gaman. Frekar breytt lið frá því á seinasta tímabili en mér líst rosa vel á þetta. Jovan verður aftur með okkur og sögurnar segja að hann hafi skroppið heim í sumar og komið til baka með vin sinn með sér sem spilar með okkur líka og er hann þá annar þessara tveggja nýju útlendinga hinn kemur frá USA. Nú svo er bara fullt af ungum strákum sem eru að brillera í liðinu .. hlakkar til í vetur að sjá hvernig þeim gengur. En já við vorum að spila við Snæfell og auðvitað unnum við ;o)

En aftur að mun alfarlegri málum .. í dag er seinasti dagurinn minn sem stelpu :´( mér er sagt að á morgun verði ég kerling. Ég er að hugsa um að reyna að flíja þessa staðreind með því að fá mér frý í vinnuni og sofa allavega til tvö og láta svo sem minnst fyrir mér fara allan daginn. Svo ef þið skilduð rekast á mig .. ekki hafa hátt um það.

þriðjudagur, september 27, 2005

Myndir frá París































Jæja það er kannski hægt að segja að það sé gott að vera bara á klakanum. Samkvæmt frétt á MBL handtók Franska lögreglan 9 menn sem höfðu í hyggju að gera hriðjuverkaárás á lestarkerfi Parísar og jafnvel flugvöll og eitthvað meira líka. Maður hugsaði nú stundum um þetta þegar maður var að skrölta um í vögnunum þrisvar til fjóru sinnum á dag .. en annars fynnst mér voða róandi og þægilegt að ferðast með þessum lestarkefum, allavega þar sem ég hef mest notað þetta, París, London og Chicago, þetta er svo einfalt og þægilegt .. þegar það er ekki verið að sprengja þetta, það er að segja.

En allavega, ég er búin að skella myndum frá París inn á síðuna mína ... Endilega kíkja ... það var frekar erfitt að velja inn myndir, enda ekki teknar nema svona um 1.000 myndir í ferðinni, sko ekki bara af mér samt ;o)

En á þessari mynd er ég stödd í Trocadero garðinum með Eiffell í bakgrunninum. Við uppgötvuðum okkur til mikilla skelfinar að við höfðum ekki verið nógu líflegar í okkar fyrri uppstillingum svo því var breitt með de samme :o)

Hún Ágústa er búin að skella ferðasögunni á bloggið hjá sér á glæsilegann hjátt svo ég ætla ekkert að vera að gera það líka .. kíkið á síðuna hennar Ágústu og lesið ferðasöguna ..

föstudagur, september 23, 2005

Klukk

Ooo Dagný náði mér ..
Það er víst komið að vera að segja fimm staðreindir um sjálfan mig.

1. Allar mínu bestu vinkonur er "ljóskur" hvað segir það um mig ;o)

2. Þegar ég var lítil ætlaði ég að verða Hárgreiðslukona á mótorhjóli þegar ég yrði stór, sem betur fer er ég ekki orðin stór því ég ræð ekki við mitt eigið hár og er hrædd við mótorhjól.

3. Ég borða ekki heitan Ananas, Ólifur og Súsí, ég held bara allt annað.

4. Eftir að ég eignaðist börnin mín er ég súper viðkvæm, ég grenja bókstaflega yfir öllu í sjónvarpinu, ER, Morgunstundinni, Law and Order og Fréttunum svo eitthvað sé nefnt.

5. Mér finnst rosa gaman að borða og borða svo til hvað sem er (ekki að það sjáist neitt mikið á mér) en ég þoli ekki að elda, það fyrsta sem ég myndi gera ef ég myndi vinna í Lottó væri að ráða húshjálp sem eldar og þrífur.

Jæja ég ætla að klukka nokkrar dömur, Ingibjörgu, Ágúst, Guðbjörgu og Ellen.

miðvikudagur, september 21, 2005

Sjokkerandi fréttir

Ég sem hélt að ég væri búin að skila mínu ...

... nei það er greinilega ekki svon, samkvæmt frétt á MBL er Evrópubúm að fækka, meðal barn á konu er 1,5 og fer niður í 1,3 sumstaðar, en þarf að vera 2,07 til að sporna við fólksfækkun. Ég sem hélt að ég væri búin að gera mitt til þess að viðhalda mannkininu. Nú er ég sem sagt að spekúlera í því hvernig ég fer að því að eignast 0,07 barn.

Mikið voðalega er þessi heimur skrítinn, fyrir nokkrum dögum var frétt á MBL um aðgerðir í Asíu til að sporna gegn fólksfjölgun, þar sem stjórnvöld voru fundin vís að því að neiða fólk í ófrjósemisaðgerðir og annað í þeim dúr. Nú eru Evrópubúar að leita leiða til að kvetja fólk til barneigna.

Það þarf nú reindar ekki neinn sérstakan gáfumann (eða konu) til að fatta hvað getur kvatt Íslendinga til að fjölga sér, mér detta meira að segja nokkur ráð í hug, við gætum t.d tekið af rafmagn alltaf á sunnudagskvöldum, sett lifleisu í stað p pillunar í svona 10. hvern pakka, haft einn smokk af hverjum 10 með gati, hefja nýja þáttaröð af Tantra fyrir elskendur ... nú svo væri líka hægt að styðja við bakið á barnafjölskildum með því t.d að afnema tekjutengingu barnabóta eða niðurgreiðslu á dagvistunargjöldun svo eitthvað sé nefnt ... en hitt er áræðanlega ódýrara og einfaldara.

þriðjudagur, september 13, 2005

Komin heim

Jæja nú er maður lentur hérna í skíta kuldanum ..

París var æði, allveg eins og ég vissi svo sem.
Það fyrsta sem við skoðuðum í París var Sigurboginn og svo enduðum við á Eiffel turninum, þarna á milli var svo Champ Elysées, Louvre, Notre Dame, Sacré Cæur, Place du Tertr, La Défense og margt margt fleirra .. enn á ég þó eftir að gera margt í París svo ég fer þangað aftur það er á hreinu. Ég bókstaflega Elska þessa Borg.

Þetta var sem sagt rosalega notaleg ferð, við vinkonurnar höfum sennilega aldrey eitt svona miklum og skemtilegum tíma saman áður svo þetta var ógleimanlegt, en kallar auðvitað á það að við verðum að gera þetta aftur ;-)

Ég set myndir inn á síðuna mína með smá ferðasögu fljótlega ... :o)

miðvikudagur, september 07, 2005

París parís here I come

Jæja nú er þetta að skella á, ég legg af stað til Parísar milli 3 og 4 í nótt.
Ég er búin að pannta hraustan líkama og gott veður .. það er nú ekkir komið á hreinnt með hvorugt en ég vona það besta.

Læt heira í mér þegar ég kem til baka ... bæjó.

mánudagur, september 05, 2005

Nokkrar skjátur komnar niður

Jæja þetta tókst afar vel hjá okkur að safna saman skjátunum á fjallinu, reindar sjaldan verið jafn fáar skjátur sem voru tilbúnar að koma heim. Ég var náttúrulega í því alla helgina að reyna að hugsa vel um mig svo ég verði nú hraust og fín í París. Það tókst svona í stórum dráttum mjög vel, reindar ekki miklar líkur á því að manni yrði kallt þar sem sólin var alldrei langt undan. Ég hins vegar gleimdi mér aðeins, áhvaðað prufa hann Sörla með engan hnakk og það tók smá á þar sem hann er svo grannur og nettur að maður hafði bara ekkert á milli lappana til að halda sér í. Svo ég er með smá vott af hassberum sem ég vona nú að Hverfi fljótlega ..

En það eru sem sagt bara 3 dagar þar til ferðin mikkla til Parísar verður farin og það er komin smá fiðringur í mann, ætli maður fari ekki að spá í því hverju skal klæðast og setja eitthvað niður í töskur. Þetta helsta er nú klárt, passi, visakort og flugmiði .. er það ekki bara aðal málið.

föstudagur, september 02, 2005

Upphafið af byrjuninni

Jæja gott haldiði að það sé ekki bara komin föstudagur .. again..

Þetta er búin að vera fín viku svona að mestu, mín hefur bara skellt sér á fætur klukkan 07:15 alla dagana, klætt og fætt liðið og rölt svo af stað með krökkunum í skólann og sjálf í vinnuna. Þetta er allgerlega ný lífsreinsla fyrir mig, en 07:15 er ekki vanalegur tími til að sjá mig á fótum, en vitið menn, þetta er bara ekki svo hræðilegt.

Ég hef verið að rölta upp í skóla og fyrlgjast með svona áður en ég rölti í vinnuna, þetta er nú meira fjörið þarna. Jón Steinar má helst ekki vera að því að fara inn með töskuna sína áður en hann fer að leika við strákana sem eru alltaf komnir á undan honum upp í skóla. Það er nú ekki þessi asin á henni dóttir minni :o)

Svo eru kvöldin í vikunni hjá okkur ekki búin að vera síðri en dagarnir, ég er búin að vera að lesa fyrir krakkana á mínar uppáhalds bækur ELÍAS :o) þetta er bara snild þessar bækur, í gær hlóum við svo mikið að ég ætlaði aldrei að geta klárað lesturinn.

Jæja nú um helgina er stefnan svo teki á Búðardal, þar fer framm fyrsta smalamennskan þetta "haustið" svo verður auðvitað réttað á eftir og riðið heim að Spágilsstöðum.
Lagt verður af stað upp á fjall upp úr 6, svo það er eins gott að fara snemma að sofa í kvöld.
Heimkoma er ekki áætluð fyrr en á sunnudag og þá verður bara lagt kapp á að hafa sit til í Parísarferðina ... nó að gera næstu daga ..