Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

fimmtudagur, september 29, 2005

Nú fer fjörið að byrja .. eða ekki.

Fór á æfingarleik hjá Skallagrím í körfuni í gærkvöldi, það var bara fullt hús og rosa gaman. Frekar breytt lið frá því á seinasta tímabili en mér líst rosa vel á þetta. Jovan verður aftur með okkur og sögurnar segja að hann hafi skroppið heim í sumar og komið til baka með vin sinn með sér sem spilar með okkur líka og er hann þá annar þessara tveggja nýju útlendinga hinn kemur frá USA. Nú svo er bara fullt af ungum strákum sem eru að brillera í liðinu .. hlakkar til í vetur að sjá hvernig þeim gengur. En já við vorum að spila við Snæfell og auðvitað unnum við ;o)

En aftur að mun alfarlegri málum .. í dag er seinasti dagurinn minn sem stelpu :´( mér er sagt að á morgun verði ég kerling. Ég er að hugsa um að reyna að flíja þessa staðreind með því að fá mér frý í vinnuni og sofa allavega til tvö og láta svo sem minnst fyrir mér fara allan daginn. Svo ef þið skilduð rekast á mig .. ekki hafa hátt um það.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home