Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

mánudagur, september 05, 2005

Nokkrar skjátur komnar niður

Jæja þetta tókst afar vel hjá okkur að safna saman skjátunum á fjallinu, reindar sjaldan verið jafn fáar skjátur sem voru tilbúnar að koma heim. Ég var náttúrulega í því alla helgina að reyna að hugsa vel um mig svo ég verði nú hraust og fín í París. Það tókst svona í stórum dráttum mjög vel, reindar ekki miklar líkur á því að manni yrði kallt þar sem sólin var alldrei langt undan. Ég hins vegar gleimdi mér aðeins, áhvaðað prufa hann Sörla með engan hnakk og það tók smá á þar sem hann er svo grannur og nettur að maður hafði bara ekkert á milli lappana til að halda sér í. Svo ég er með smá vott af hassberum sem ég vona nú að Hverfi fljótlega ..

En það eru sem sagt bara 3 dagar þar til ferðin mikkla til Parísar verður farin og það er komin smá fiðringur í mann, ætli maður fari ekki að spá í því hverju skal klæðast og setja eitthvað niður í töskur. Þetta helsta er nú klárt, passi, visakort og flugmiði .. er það ekki bara aðal málið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home