Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

miðvikudagur, september 21, 2005

Sjokkerandi fréttir

Ég sem hélt að ég væri búin að skila mínu ...

... nei það er greinilega ekki svon, samkvæmt frétt á MBL er Evrópubúm að fækka, meðal barn á konu er 1,5 og fer niður í 1,3 sumstaðar, en þarf að vera 2,07 til að sporna við fólksfækkun. Ég sem hélt að ég væri búin að gera mitt til þess að viðhalda mannkininu. Nú er ég sem sagt að spekúlera í því hvernig ég fer að því að eignast 0,07 barn.

Mikið voðalega er þessi heimur skrítinn, fyrir nokkrum dögum var frétt á MBL um aðgerðir í Asíu til að sporna gegn fólksfjölgun, þar sem stjórnvöld voru fundin vís að því að neiða fólk í ófrjósemisaðgerðir og annað í þeim dúr. Nú eru Evrópubúar að leita leiða til að kvetja fólk til barneigna.

Það þarf nú reindar ekki neinn sérstakan gáfumann (eða konu) til að fatta hvað getur kvatt Íslendinga til að fjölga sér, mér detta meira að segja nokkur ráð í hug, við gætum t.d tekið af rafmagn alltaf á sunnudagskvöldum, sett lifleisu í stað p pillunar í svona 10. hvern pakka, haft einn smokk af hverjum 10 með gati, hefja nýja þáttaröð af Tantra fyrir elskendur ... nú svo væri líka hægt að styðja við bakið á barnafjölskildum með því t.d að afnema tekjutengingu barnabóta eða niðurgreiðslu á dagvistunargjöldun svo eitthvað sé nefnt ... en hitt er áræðanlega ódýrara og einfaldara.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home