Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

mánudagur, október 31, 2005

Jóla hvað?

Jæja eru jólin að nálgast á ógnar hraða núna eða hvað ...
Helgin fór í það að föndra jóla kort, fyrst var það hinn árlegi jólakortadagur hjá mömmu og hennar systkinum, en það er sem sagt seinasti laugardagurinn í Október, það var auðvitað rosa gaman, mikið hlegið og mikið föndrað, eða allavega einhverjir föndruðu mikið, mér tókst nú bara að gera 6 jólakort :o/ En mér tókst að læra eitthvað á þetta Scrapp dót sem ég keypi mér fyrir helgina
... var ég ekki búin að segja ykkur frá því ...
ég, Dagrún Eir og mamma skelltum okkur í föndurferð til RVK fyrir helgina og mér tókst að kaupa mér fyrsta skrapp dótið mitt, fyrstu tvo dagana sat ég langt fram á nótt og horfði á þetta fína dót og velti því fyrir mér hvað ætti að gera við það og hvort ég ætti nokurn tíman eftir að ná að gera úr þessu listaverk eins og til stóð.
... en allavega ...
jólakortagerðin hélt svo áfram á sunnudaginn en þá leifði ég krökkunum að spreita sig, og það er náttúrulega ekki að spyrja að því, þau framleiddu þessi líka rosa fínu jólakort.

En það er meira jólastúss í gangi, dagatala gerð liggur í loftinu, mamma er að berja okkur áfram svo við náum nú að klára þetta fyrir þolláksmessu, ólíkt því í fyrra og seinusu ár.

Ég er hins vegar ekki komin í neitt jólaskap, allavega ekki ennþá, það kemur áræðanlega ef ekki af sjálfu sér þá nær Dagrún Eir pottþétt að tala það inn í mig :o)
Annars finnt mér óþarfi af þessum verslunum að vera komin með Jólaskrautið upp í Október, maður verður komin með leið á þessu jóla stússi löngu fyrir jól.

mánudagur, október 24, 2005

"Guð setti augun framan á höfuðuið á okkur svo við gætum horft fram á veginn"

mánudagur, október 17, 2005

Allt að gerast.

Jæja það er kominn nýr og betri 500 krónu seðill. Loksins einhverjar góðar fréttir. Ég ætla sko að fara í bankann í dag og fá mér nýjan 500 króna seðil, skella mér svo í Bónus og tékk á því hversu góður hann er ... hvað ætli ég fái mikið fyrir hann ...

Svo er það karfan, Skallagrímur hefur hafið sigurför sína, reindar búnir að tapa fyrstu tveim leikunum í deildinni en það er bara lognið á undan storminum. Það er ekki leikur næst fyrr en 27. okt og þá heimaleikur .. þá tökum við þetta.

En þar fyrir utan þá er ég búin að setja inn Sumarmyndir í myndaalbúmið mitt, ekki seinna vænna. Þetta er bara svona brot af því besta, sætar sumarmyndir aðalega af sætu börnunum mínum og svo sætu mér thí hí hí .....

miðvikudagur, október 12, 2005

Nú er ég reið

Fyrst verð ég að gefa Thelmu og systrum hennar stórt hrós, þvílíkar hetjur þessar konur. Ekki bara það að þora að stíga framm og segja frá reynslu sinni heldur líka bara að lifa þetta af og koma svona eins "heilar" manneskjur út úr þessu og hægt er.

En vá hvað maður verður reiður, hvernig getur svona nokkuð átt sér stað og það sem verra er .. er þetta virkilega ennþá að eiga sér stað í okkur "fullkomna" landi.

Ég hvet alla sem ekki hafa gert það til þess að lesa grein.
Við getum ekki látið þetta viðgangast lengur, við verðum að gera eitthvað.
En hvað getum við gert, Hér er ein hugmynd sem mér finnst við ættum öll að gera.
Hér eru svo síður sem er vert að skoða Blátt áfram og heimasíðu Ágústs Ólafs sem hefur að nýju lagt fram á Alþingi lagafrumvarp um afnám fyrningarfresta vegna kynferðisafbrota gegn börnum. Hættum ekki fyrr en við sjáum árangur !!

þriðjudagur, október 11, 2005

Sauðalegur var maður.


Jæja þá er Sauðamessa af staðin, þetta var heljarinnar gaman, sauðirnir þurstu framjá húsinu mínu svona um hálf tvö leitið og við á eftir niður að gamla mjólkursamlagi þar sem þrusu dagskrá tók við. Sökum veðurs og óskinsemi þess sem skrifar þá tók kuldi að segja til sín mjög fljótlega og eftir að hafa gert heiðalega tilraun til að þíða mig með kjötsúpu þá fór ég heim í heitt bað og tókst þannig að ná af mér mesta klakanum.
Um kveldið var svo Sauðapartý í tilefni áhveðinns áfanga sem ég ætla nú ekkert að ræða meira um. Þar voru saman komnir fáir en góðir einstaklingar og var mikið fjör og mikið gaman. Eftir það var svo farið að dansa. Ekki náðist samstaða með það hvert átti að fara og klofnaði flokkurinn í tvent, þeir sem töldu sig með unglingunum voru aðeins 2 og fóru þeir í Valfell, restin taldi sig með heldri mönnum og fór á Búðarklett. Þar var stappa af fólki, en aftur, mikið fjör og mikið gaman.
Ég er búin að setja inn þær fáu myndir sem voru tekknar í Sauðapartý ef þið viljið kíkja.

fimmtudagur, október 06, 2005

Sauða hvað ..

Jæja eins og allir eiga að vita er Sauðamessa í Borgarnesu næstkomandi laugardag. Í því tilefni og einnig til að fagna vissum áfanga sem ég vil sem minnst ræða umm, þá ætla ég að bjóða ykkur í smá sauðapartý .. heima hjá mér .. .. svona bara á partýtíma .. .. allir velkomnir sem vita hvar ég á heima .. .. og tala nú ekki um þeir sem lesa bloggið mitt .. Bwahahahaha ...
Skilda að koma sauðalegur til fara
Ef ykkur finnast afurðir sauðkindarinnar ekki góðar þá mæli ég ekki með því að koma svangur ..

Mæting upp úr 8
Svo er ball um kvöldið ..

En allavega þangað til .. þá endilega kíkið á þetta ..
Sauðavefurinn
Sauðamessulagið

Smalaæfingar

miðvikudagur, október 05, 2005

Verðið að lesa.

"Það er nýr vírus kominn á klakkan, þessi er mjög skæður og hefur ekki enn tekist að finna neitt til að vinna gegn honum, þeir sem fá hann geta átt í löngu basli við að ná honum úr sér og sérfræðingarnir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Hann er bráð smitandi en ólíkt öðrum vírusum þá ræðst hann síst á börn og eldra fólk. Dæmi eru um það að fólk sé í hálft ár til ár að ná sér og sumir ná sér alldrei.
Helstu smitleiðir eru gegnum bloggsíður en einnig er dæmi um það að fólk hafi smitast á leitarsíðum. Einkennin eru ekki alltaf greinileg í fyrstu, en þetta byrjar þannig að fólk fer að sleppa úr einu og einu bloggi á bloggíðunum sínum, svo ágerist þetta og ekkert blogg kemur á boggsíðurnar í vikur eða jafnvel mánuði. Ef ekkert er að gert getur þetta jafnvel leitt til þess að ekkert blogg verði framar sett á síðuna. "

Rakst á þessa frétt á BULL.is
Eins gott að passa sig á þessum, en mig grunar nokkra sem ég gæti smitast af :o)

mánudagur, október 03, 2005

Kannski næst

Jæja einu sinni er allt fyrst, það var brotist inn í bílinn minn í nótt, ef svo má að orði komast, bíllin var reindar opinn svo maður ætti kannski frekar að segja farið var inn í bílinn minn í leifisleisi í nótt .. allavega þá var öllu rótað út um allt en ekkert tekið, hvorki græjurnar (sem eru næstum verðmætari en druslan) geisladiskarnir né verkjatöflurnar sem voru í hanskahólfinu, veit ekki allveg hverju þau vour að leita að blessuð börnin, en ég hef reindar heimildir fyrir því að tóbaki hafi verið stolið úr öðrum bíl í nesinu svo það er kannski málið.
Krökkunum fannt þetta rosa spennandi, "hei .. fyrsta ránið okkar" :o)
En þetta ætti að kenna manni að læsa druslunni, næst verður kannski eitthvað tekið.

En að allt öðru, ég hef kannski ekki sagt ykkur það en ég er að læra Jarðfræði núna í fjarnáminu og í gær var ég að lesa um sólkerfið okkar og sólmyrkva meðal annar, svo sé ég á MBL í morgun að klukkan 9 væri hægt að sjá sólmyrkva ef skigni leifir, svo mín dreif sig út og eina mínútu í 9 ... spennan magnast og BÚMM ... risa skí kemur og plantar sér fyrir framan sólina svo ég sá ekki baun :o( gengur kannski betur næst.