Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

miðvikudagur, október 12, 2005

Nú er ég reið

Fyrst verð ég að gefa Thelmu og systrum hennar stórt hrós, þvílíkar hetjur þessar konur. Ekki bara það að þora að stíga framm og segja frá reynslu sinni heldur líka bara að lifa þetta af og koma svona eins "heilar" manneskjur út úr þessu og hægt er.

En vá hvað maður verður reiður, hvernig getur svona nokkuð átt sér stað og það sem verra er .. er þetta virkilega ennþá að eiga sér stað í okkur "fullkomna" landi.

Ég hvet alla sem ekki hafa gert það til þess að lesa grein.
Við getum ekki látið þetta viðgangast lengur, við verðum að gera eitthvað.
En hvað getum við gert, Hér er ein hugmynd sem mér finnst við ættum öll að gera.
Hér eru svo síður sem er vert að skoða Blátt áfram og heimasíðu Ágústs Ólafs sem hefur að nýju lagt fram á Alþingi lagafrumvarp um afnám fyrningarfresta vegna kynferðisafbrota gegn börnum. Hættum ekki fyrr en við sjáum árangur !!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home