Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

þriðjudagur, október 11, 2005

Sauðalegur var maður.


Jæja þá er Sauðamessa af staðin, þetta var heljarinnar gaman, sauðirnir þurstu framjá húsinu mínu svona um hálf tvö leitið og við á eftir niður að gamla mjólkursamlagi þar sem þrusu dagskrá tók við. Sökum veðurs og óskinsemi þess sem skrifar þá tók kuldi að segja til sín mjög fljótlega og eftir að hafa gert heiðalega tilraun til að þíða mig með kjötsúpu þá fór ég heim í heitt bað og tókst þannig að ná af mér mesta klakanum.
Um kveldið var svo Sauðapartý í tilefni áhveðinns áfanga sem ég ætla nú ekkert að ræða meira um. Þar voru saman komnir fáir en góðir einstaklingar og var mikið fjör og mikið gaman. Eftir það var svo farið að dansa. Ekki náðist samstaða með það hvert átti að fara og klofnaði flokkurinn í tvent, þeir sem töldu sig með unglingunum voru aðeins 2 og fóru þeir í Valfell, restin taldi sig með heldri mönnum og fór á Búðarklett. Þar var stappa af fólki, en aftur, mikið fjör og mikið gaman.
Ég er búin að setja inn þær fáu myndir sem voru tekknar í Sauðapartý ef þið viljið kíkja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home