Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

föstudagur, maí 27, 2005

Dagur 2.

Jæja þá er komið að degi númer 2 á nýja blogginu mínu, það er svona ýmislegt sem ég þarf að athuga með, t.d væri einhver til í að segja mér hvernig ég set broskalla í textan hjá mér, ég er nefnilega broskalla óð, mér finnst nauðsinlegt að hafa svona kalla til að undirstrika það sem ég er að segja því það er svo auðvelt að misskilja fólk þegar maður er að lesa á netinu.

Ég er t.d oft búin að spá í því hvað það hefði getað komið í veg fyrir mörg rifrildi á barnalandi ef við hefðum svona broskalla þar. Ég hef nú reindar líka tekið eftir því að það væri gott að hafa broskalla til að skella framaní fólk stundum, það er ótrúlegt hvað sumir bara fatta ekki þegar maður er að grínast, er ég kannski bara með svona lélegan húmor?

Jæja allavega þá vantar mig broskalla og auglýsi með þeim hér með!

fimmtudagur, maí 26, 2005

Nýtt blogg ..

Já ég veit að þetta er gott dæmi um það hvað ég er óákveðin, eirðarlaus, óþolinmíð og nýjunagjörn. En ég er nú búin að vera með sama bloggið í NÆSTUM ár ..

.. en málið var bara að ég er komin með stút af þessum auglýsingum á central, það er búið að klína þessu alsstaðar ..

.. ég er samt ennþá að reyna að læra á þetta spott dæmi, það er svona í flóknari kantinum fyrir mig, eða ja kannski ekkert flólið þannig séð en svona meira mál ..

.. núna er ég t.d að vesenast í þessu kommenta kerfi, það er bara ekkert eins og er :o(

En þetta reddast allt ... er það ekki Dagný :o)