Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

föstudagur, ágúst 26, 2005

Ekkert að frétta

Jeij loksins kominn föstudagur, annarst finnst mér þessi vika hafa liði ótrúlega hratt, hvernig endar þetta .. það er eins gott að ég er að vinna á skrifstofu og þarf þar af leiðandi að vita hvaða dagur er ... annars gæti liði heill mánuður án þess að ég taki eftir því :-/

Það er afar róglegt í mínu lífi núna, svo róglegt að ég er að gera vinkonur mínar klikkaðar (eins og þær hefðu mátt við því) málið er að við erum að fara til Parísar sem eflasut flestir vita nema það að ég þarf allt að vita og skipuleggja, ég þarf að vita hvað er hægt að skoða og gera, hvar það er, hvenær það er opið, hvað það kostar, hvaða Metró slöð er næst því og svo framvegis, einnig vil ég fræðast um það sem er að skoða eins og t.d hvað er svona merkilegt við Sigur bogan og af hverju er París full af svona bogum .. Hver bjó í öllum þessum höllum, hvað er í þessum söfnum og ef það er eitthvað merkilegt hvar er það þá .. ég er til dæmist búin að komast að því að Móna Lísa er á 1. hæð í herbergi númer 13 í Louvre safninu. Svona hluti verður maður að vita áður en lagt er af stað, það þíðir ekkert að ana út ú einhverja vitleisu.

Ég er líka búin að komast að því að það þarf alltaf að vera einhver hlutur sem við getum ekki allmennilega ákveðið .. eins og með gistinguna það tók okkur talsvert puð að ákveða hvar við ættum að gista, ekki það að við værum eitthvað ósamála, alls ekki sko, það er bara svo margt í boði. Núna erum við til dæmis að velta því fyrir okkur hvort við eigum að skreppa til Versala, ætli við ákveðum það ekki bara í flugvelinni á leiðinni úr :o)

Jæja ætli ég fari ekki að reina að bögga einnhver ..

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Dagur 2

Jæja þá er ég búin að fara með krakkana í skólann í dag. Við fórum auðvitað labbandi í skólan Dagrún Eir byrjaði daginn á því að fara í Heimilisfræði og Jón Steinar settist inn í sína stofu, þar var spjallað aðeins saman og svo fór hann í skoðunarferð um skólann, ég náttla skellti mér með .. það er nú nauðsinlegt að kíkja á þetta reglulega, það er alltaf verið að breyta einhverju þarna hjá þeim. Eftir skoðunnarferðina fór hann að leika sér og ég gat spjallað aðeins við kennarann hans, sem var fínnt því ég er ekki eins ó sátt og ég var í gær ... sem sagt útlitið betra í dag.

Annars er komið allt of mikið haust veður, ég meina það er ennþá Ágúst !! Ætili þetta lagist ef skólaárið verður stitt aftur ?? Mér finnst allavega allveg vert að skoða það, ég meina það er skíta kuldi og rok úti :-(

Helduru að ég hafi ekki bara labbaði í vinnuna í dag, ég verð nú að segja að mér finnst skemtilegra að hjóla en labba en það var bara ekki í boði, ég fór labbandi með grísina svo það var ekkert voða gáfulegt að labba alla leið heim til þess að ná í hjólið ... held það sé svipað langt hem og í vinnuna frá skólanum ... ja kannski heldur lengra í vinnuna.

Svo stendur nú líka til áð fara að hreifa sig aftur, þetta gengur ekki þessi leti. Ég þarf líka að ná upp talsverðu þoli til að geta labbað götur Parísar framm og aftur :o)

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Smá pirr í dag.

Jæja á maður að þora því að blogga núna, skrifaði ritgerð um daginn en svo fraus allt draslið og ekkert vistaðis. Arg ...

Arg .. er einmitt orðið mitt í dag, var á skólasetningu hjá börnunum .. kom heim frekar ó sátt :o(
reindar rosa sátt með allt hjá dóttur minni, get ekki sagt það sama með upphafið hjá syninum, hann fær reindar fínann kennara eða mér líst mjög vel á hana en hún er bara EIN með 31 barn !!
Reindar eru 2 stuðningsfulltrúar eða mig minnir að þeir hafi verið titlaðir það, en það er meira að segja færra lið en er með 3. bekk ... oooo nú er ég reið og pirr .... en málið er að ég veit ekki hvert ég á að beina reiðinni, mér skillst að það sé ekkert svo erfitt að fá kennara, það er bara ekkert HÚSNÆÐI fyrir þá í öllu Borgarnesi .... arg ..

Jæja en fyrst ég er að hugsa um son minn, hann getur verið æðislega utan við sig stundum að það er allveg met, við vorum að spila áður en við fórum að sofa í gærkvöld og ég var búin að gefa í Ólsen Ólsen, hann sat næst mér og ég segi honum að hann eigi að byrja .... það heirist ekkert í smá stund en svo segir hann "Eigið þið sjöu" Bwahahahaha ég hélt ég myndi velta úr stólnum úr hlátri ... en svona er hann oft .. svo utan við sig að það er bara findið.

Jæja ætla að athuga hvort þessi færsla fari í hundana ein og síðasta sem ég gerði.

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Rosa erfitt eitthvað ...

Mikið rosalega er eitthvað erfitt að komast í Blogg gírinn eftir þetta rosa blogg frý.
Við fórum í útilegu um helgina, forum á flakki fyrir austan og enduðum svo á Hellu í rosa fjöri þar. Meðal annars brekkusöng með Árna kallinum og rosa flugeldasýningu. Dagin eftir skoluðums við svo í burtu í þessu rosa regni, en það var svo sem ekkert sem við vissum ekki að mundi gerast.
Við vorum svo allan sunnudaginn að komast heim, fórum í nokkrar heimsóknir ... Ellen við komum næst til þín ... við enduðum í Mosó þar sem nýja talvan okkar beið eftir okkur, nú getum við Ásgeir aftur setið á sitthvori hæðinni og spjallað saman á MSN .. rosa góð samskiptaleið :o)

Þessi vika verður bara frekar róleg held ég, það er planað að fara til Reykjavíkur í vikunni, sennilega á morgun .. já Ellen verður þú heima á morgun ;o) .. Jón Steinar þarf að kaupa sér skólatösku og svo þarf að versla svona sitt lítið af hvoru fyrir skólann sem byrjar víst í næstu viku. Svo sumarið er allveg að verða formlega búið :o(

Það fjölgar alltaf vinkonunum sem eru orðnar að ellismellum, hún Sigrún lenti í þessu í gær greiið, svei mér þá ef ég er ekki bara næst ;-( ...

... jæja farin að njóta þess að vera ennþá ung

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Venjulegur þriðjudagur.

Jæja jæja, þetta er ósköp venjulegur þriðjudagur, eginlega of venjulegur eitthvað, ég sit bara fyrir framan tölvuna og nenni ekkert að gera :(

Það er ausandi rigning úti, æðislegt fyrir blómin !!

Gamla settið var að koma heim frá svíjaríki í dag, eru búin að vera í drullusvaðinu á heimsmeistaramótinu og skemmtu sér konunglega, sérstaklega mamma á mótinu, thíhíhí ... það er hægt að segja það án þess að vera mikið að ýkja að hálf ættin var þarna saman komin.

Það eru 30 dagar þar til ég fer til Parísar, við erum enn að vesenast yfir því hvaða hóteli við eigum að vera á ... miðað við úrvalið af hótelum þá er ég farin að halda að það séu allavega tvö hótel í hverju húsi þarna maður ... sem gerir leitina auðvitað mjög flókna. Á maður að vera í ódýru hóteli og deila rúmmi með köngulóm og kakkalökkkum eða á maður að borga heldur meira og minka þar með líkurnar á slíkum gestum. hummm bara erfitt ....
Annars var ég á fínu hóteli úti í París þegar ég var það 2003 en þar kostar dvölin í 4 nætur aðeins 20.000.- krónur og morgunmatur 1.500.- á mann á dag ... sem er aðeins meira en við höfðum hugsað okkur. Sind því það var frábært hótel.

Jæja ég ætla að fara að halda áfram að gera ekkert, ef þið vitið um ódýrt og gott hótel í parís, ekki hika við að bjalla í mig :o)

sunnudagur, ágúst 07, 2005

Kvennareið

Jæja nú er maður komin úr sveitinni, ég fór sem sagt vestur í dali til að taka þátt í hinni árlegu kvennareið dalakvenna, það var eins og vanalega mikil gleði og mikið gaman.
Að þessu sinni vorum við 4 af Spá genginu þar sem stór hluti kvennana var staddur í Svíþjóð uss uss en við skemtum okkur fyrir þær allar og fórum létt með það. Við fengum æðislegt veður, fínan mat, og fullt af víni :o) Eftir reiðina var auðvitað endað á pöbbanum eins og vanalega, það er að segja eins og vanalega fyrir þá sem ná að halda sér vakandi svo lengi ... Hrefna ég er ekkert að skjóta á þig neit sko ... Við vorum samt ekkert að leina því hvað það væri gaman hjá okkur og sendum nokkur SMáSkilaboð út í Svíaríki :O)

Það kemur manni samt alltaf jafn mikið á óvart hvað helgarnar eru fljótar að líða, uss uss það er að byrja enn en vinnuvikan á morgun. Og það er ekki laust við að maður sé smá þreittur eftir átök gærdagsins.

Ætla að taka smá kríju.

föstudagur, ágúst 05, 2005

Long time ...

Jæja ég er mætt aftur, það er búið að vera nó að gera hjá mér, en ég fann mér loks tíma til að laga þessa síðu svo ég hafi list á því að fara inn á hana.

Sumarið er búið að vera fínnt, Júlí er búin að fara í það að ríða út. Við fórum í helgarferð í Hjörsey sem var bara gaman .. svo kom verslunarmannahelgin og þá voru farnir nokkrir túrar, núna um helgina er kvennareið í dölum. Það á sem sagt að legga í hann í dalina snemma í fyrramálið.

Við skelltum okkur í bíó líka um daginn, fórum með krakkana að sjá Madagaskar, hún var ágæt en samt ekki sú besta sem ég hef séð. Enda er það oft þannig þegar það er mikið búið að lofa svona myndir þá standa þær síður undir væntingum, ég held að það hafi einmitt gerst í þessu tilfelli.

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili, guðgjörg og gestur eru með myndir af Hjörseyjarferðinni á síðuni hjá sér fyrir þá sem vilja kikja ... Hjörsey ...