Jóla hvað?
Helgin fór í það að föndra jóla kort, fyrst var það hinn árlegi jólakortadagur hjá mömmu og hennar systkinum, en það er sem sagt seinasti laugardagurinn í Október, það var auðvitað rosa gaman, mikið hlegið og mikið föndrað, eða allavega einhverjir föndruðu mikið, mér tókst nú bara að gera 6 jólakort :o/ En mér tókst að læra eitthvað á þetta Scrapp dót sem ég keypi mér fyrir helgina
... var ég ekki búin að segja ykkur frá því ...
ég, Dagrún Eir og mamma skelltum okkur í föndurferð til RVK fyrir helgina og mér tókst að kaupa mér fyrsta skrapp dótið mitt, fyrstu tvo dagana sat ég langt fram á nótt og horfði á þetta fína dót og velti því fyrir mér hvað ætti að gera við það og hvort ég ætti nokurn tíman eftir að ná að gera úr þessu listaverk eins og til stóð.
... en allavega ...
jólakortagerðin hélt svo áfram á sunnudaginn en þá leifði ég krökkunum að spreita sig, og það er náttúrulega ekki að spyrja að því, þau framleiddu þessi líka rosa fínu jólakort.
En það er meira jólastúss í gangi, dagatala gerð liggur í loftinu, mamma er að berja okkur áfram svo við náum nú að klára þetta fyrir þolláksmessu, ólíkt því í fyrra og seinusu ár.
Ég er hins vegar ekki komin í neitt jólaskap, allavega ekki ennþá, það kemur áræðanlega ef ekki af sjálfu sér þá nær Dagrún Eir pottþétt að tala það inn í mig :o)
Annars finnt mér óþarfi af þessum verslunum að vera komin með Jólaskrautið upp í Október, maður verður komin með leið á þessu jóla stússi löngu fyrir jól.


