Við tækifæri

Ruglið mitt.

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Denmark

Ég er 160 centrímetrar á hæð, nota skó númer 37, ég er að vinna í því að komast að því hvernig hárið á mér er á litin, hallast að brúnum í augnablikinu, ég er svefnburka, rosalega óákveðin og er stundum allt of góð við sjálfa mig :o)

mánudagur, nóvember 28, 2005

Eitt og annað ..

En fyrst þetta .. "Hversu margar vogir þarf til að skipta um ljósaperu? Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti að virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera, tvo ef hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta peran? Mikið af pælingum og áhyggjum yfir því." ... þetta finnst mér bara passa við mig thí hí hí.

Og talandi um perur, það er náttúrulega búið að skella upp nokkrum jólaperum á heimilinu þær eru orðanar 185 stykki og meira á eftir að koma. Ég get ekki sagt annað en að jólaskapið sé bara mætt á staðin líka. Í gær var aðventukaffi og svo var rölt niður að gamala sparisjóðs húsinu og kveikt á jólatré bæjarinns. Eftir það var svo skundað í Íþróttahúsið þar sem Skallagrímur og ÍR áttu leik. Það var hin mesta skemtun ... ja allavega fyrir Skallagríms menn, en leikurinn fór 94 -62. Svo það er bara eintóm gleði á heimilinur, ja fyrir utan að Jón Steinar er með "ljótan" hósta svo hann fær að sofa heima í dag og taka því rólega.

Já og svo á laugardaginn var skrappdagur í Paradís, gleimdi allveg að nefna það uss uss, en þá skellti ég mér í höfuðboringa og hitti BL skrappara. Það voru slatti að stelpum saman komnar með allt skrapp dótið sitt, hrikalega frábært.

Jæja nó í bili ..

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Vegna fjölda áskoranna ;o)

Jæja það er rétt hjá ykkur stelpur, ég verð að gera eitthvað í þessu bloggi hérna hjá mér.
Sko þetta er svona tími hjá mér þar sem nó er að gera .. en ekkert gerist allmennilega.

Ég er að skrappa, ég er að læra, ég er að undirbúa jólin, gera dagatöl, jólakort og þessháttar og síðast en ekki síst er ég að spila World of Warcraft.
Já hvað haldið þið, ég er sokkin inn í þennan leik, ég hefði ekki trúað því sjálf. En þetta er svoa bardaga, ævintíraleikur og ég þoli hvorki bardaga né ævintíri en ég allveg dolfallin yfir þessum leik.
Er komin í 15 level, er að spila Human Mage ;o) Vinsamlegast ef einnhver er að spila þenna leik og slisast til að lesa bloggið mitt, endilega gefa sig framm.

Hvernig er það annars er komin jólastemming í fólk.

föstudagur, nóvember 04, 2005

Leti eða hvað ..

Ég nenni ekki að vinna, ég nenni ekki að taka til, ég nenni ekki að elda, ég nenni ekki að læra, ég nenni ekki að blogga, ég nenni ekki að borða ..

Jæja það er eins gott að fara að spíta í lóvana því helgin verður eintómt stuð, í kvöld er planið að fara á körfuboltaleik í nesinu, það er bikarleikur .. Skallagrímur - Fjölnir ..
Á Laugardaginn er svo árshátíð hestamannna í Dölunum, ekki lætur maður sig vanta þar, en planið er að vera komin þangað til að drekka sig til um kaffileitið.
Á sunnudag er svo svaka fjör hjá okkur vinkonunum, en þá ætlum við að hittast með allan krakkaskarann og leifa þeim að leika sér saman, .. jú við ætlum ekki að fórna heimilum okkar í þetta svo það var leigður heill íþróttasalur undir athöfnina ;o)

Svo nún verð ég að fara að stökkva upp úr þessari leti .. ... ... ..